top of page
Golden Gong Closeup

Að vera
í núinu

Stígðu út úr ys og þys hversdagsins og inn í augnablikið. Upplifðu kjarna Vestfjarða án þess að síminn kalli stöðugt á athygli þína.

Að vera í núinu er ferð sem skapar rými til að tengjast landslaginu, sjálfum þér og fólkinu í kringum þig.

Creative writing workshop - notebook, pen and coffee cup
Gong session outdoors in Iceland
Woman wearing an Icelandic wool sweater in a Yoga pose
Northern Lights
Sound healing Westfjords
IMG_1940
IMG_2079_edited
14 - 19
September 2027
450
Patreksfjörður
language icon
Enska,
Íslenska*
5 - 10
Þátttakendur**
*Ef allir þátttakendur tala íslensku fara dagskrárliðirnir fram á íslensku.
**Aldur: 14 ára og eldri
Ólögráða þátttakendum þarf að fylgja foreldri eða forráðamaður.

Innifalið

Daglegar jógaiðkanir 

2 hljóðheilunartímar

1 núvitundartími

1 skapandi ritunarnámskeið

2 hugleiðslugöngur með leiðsögn

Aðgangur að sundlaug, heitum potti og gufubaði á staðnum
5 nætur
gisting á Patreksfirði.
1 hádegisverður
2 kvöldverðir
á veitingastöðum á staðnum.
Ferð til og frá Tálknafirði á 2. og 4. degi..

Ferð til og frá Bíldudal á 3. degi.

Hittu leiðbeinendurna

black and white picture of a young woman

Birta er rithöfundur, listamaður, útgefandi og jógakennari sem býr á Patreksfirði. Hún rekur lítið bókaforlag, prentsmiðju og skapandi rými þar sem hún gefur afgangspappír nýtt líf í skissubókum og ýmiss konar listsköpun. Hún leggur áherslu á sköpun, kærleika og kyrrð í iðkun sinni.

Face of a woman with a gong on the background

Elín er staðbundinn höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferðaraðili og hljóðheilari sem vinnur með jarðtengjandi aðferðir til að stuðla að djúpri slökun og tengingu á ný. Í starfi sínu býður hún meðal annars upp á gong-hljóðböð og einstaklingsmeðferðir sem stuðla að aukinni meðvitund um líkamann og augnablikið hér og nú.

Um þessa ferð

Að vera í núinu er ferð í litlum og nánum hópi þar sem gefst rými fyrir djúpa slökun, innri vinnu og tækifæri til að kynnast þeim sem þú ferðast með.

​

Þessi ferð er ætluð þeim sem langar að stíga út úr amstri hversdagsins og kanna tengsl hugar, líkama og staðar. Hér gefst tækifæri til að upplifa landslag Vestfjarða með meiri athygli og dýpri tengingu við náttúruna.

​

​Meðan á dvölinni stendur hvetjum við þig til að leggja símann til hliðar og aftengjast netheiminum. Engin tilkynningahljóð, ekkert skroll. Þess í stað gefst þér tækifæri til að hægja á og beina athyglinni að því sem er í kringum þig: landslaginu, náttúrunni, samferðafólkinu og sjálfum þér.

​

Í stað þess að fylgja stífri dagskrá aðlagast ferðirnar okkar veðri og aðstæðum á hverjum stað. Þannig getum við nýtt hvern dag sem best, um leið og við tryggjum öryggi allra og góða upplifun. Ferðaáætlunin hér að neðan er því drög að því hvernig vikan gæti litið út.

Dagskrá

Komudagur

Síðdegis

Komdu þegar þér hentar. Verslaðu mat fyrir næstu daga og komdu þér fyrir á gististaðnum. Upplýsingar um dagskrána verða prentaðar út og lagðar inn á herbergið þitt. Leggðu símann til hliðar.

​

Um kvöldið

Hittu samferðafólkið yfir kvöldverði með íslenskri matargerð á veitingastað á staðnum.

​​Á leiðinni aftur á gististaðinn skaltu gefa þér tíma til að líta upp til himins. Kannski sérðu stjörnurnar og, ef heppnin er með þér, norðurljósin. Ef veðrið býður ekki upp á útiveru er tilvalið að kúra með bókina sem þú hefur lengi ætlað að lesa.

Mikilvægar upplýsingar

Veðrið getur breyst hratt á Vestfjörðum og því er mikilvægt að vera vel undirbúin/n fyrir breytilegum aðstæðum og tilbúin/n að njóta útiverunnar, sama hvað dagurinn ber í skauti sér. Fyrir almennar upplýsingar um hvað gott er að taka með sér, sjáðu ferðahandbókina okkar What to Pack for the Westfjords.

 

Röð og tímasetningar dagskrárliða geta breyst vegna veðurs eða annarra staðbundinna aðstæðna. Ef breytinga er þörf finnum við ávallt bestu mögulegu lausnina, án þess að það komi niður á anda eða gæðum ferðarinnar. Fyrir frekari upplýsingar um veðurskilyrði, sjáðu The Weather in the Westfjords.

​

Samgöngur

 

Ferð til og frá Vestfjörðum er ekki innifalin í þessari ferð, sem gefur þér frelsi til að velja þann ferðamáta sem hentar ferðaáætlun þinni og óskum best. Við aðstoðum þig gjarnan við að skipuleggja ákveðna samgöngumöguleika. Fyrir frekari upplýsingar, sjáðu ferðahandbókina okkar Getting to the Westfjords.

 

Allar afþreyingar sem eru innifaldar í þessari ferð eru annaðhvort í göngufæri frá gististaðnum eða innifela nauðsynlegan akstur.

Ef þú velur að leigja eða koma á eigin bíl og allir þátttakendur samþykkja það, getum við aðstoðað við að koma þátttakendum í samband fyrir komu svo hægt sé að samnýta bíla.

Hægt er að panta reiðhjól og rafhjól fyrirfram og fá þau afhent beint á gististaðinn.

Nema annað sé tekið fram er akstur milli dagskrárliða eða í frítíma ekki innifalinn.

​

Verð

​

Verð eru gefin upp í íslenskum krónum (ISK).

 

Verð ferðarinnar fer eftir því hvort þú deilir herbergi með öðrum eða ferð ein/n. Þegar við vitum hversu margir ferðast með þér sendum við þér upplýsingar um þá valkosti sem eru í boði og verð þeirra. Þar sem fjöldi plássa er takmarkaður hvetjum við þig til að hafa samband sem fyrst.

​

Þessi ferð er seld sem heildarpakki. Ekki er hægt að taka einstaka þjónustu sem innifalin er í dagskránni út úr pakkanum, skipta henni út eða fá endurgreitt ef þú velur að nýta hana ekki.

​

Næra Westfjords ráðstafar 1.500 ISK fyrir hvern fullorðinn úr verði ferðarinnar til björgunarsveita í Vesturbyggð, til að sýna stuðning við það mikilvæga hlutverk sem þær gegna við að tryggja öryggi íbúa og gesta í sveitarfélaginu. Framlagið er afhent björgunarsveitunum árlega um jólin.

​

Greiðsla

​

30% óafturkræft staðfestingargjald þarf að greiða til að staðfesta bókunina.

Eftirstöðvarnar, 70%, greiðast í einni greiðslu eigi síðar en 60 dögum fyrir upphaf ferðarinnar.

Hægt er að greiða með greiðslukorti í gegnum öruggan greiðsluhlekk eða með bankamillifærslu. Greiðsluupplýsingar verða eingöngu sendar frá bookings[at]naerawestfjords.is.

​

Afbókunarreglur

​

Vegna eðlis þessarar hópferðar og þess skipulags sem felst í samvinnu við marga staðbundna þjónustuaðila gilda eftirfarandi afbókunarreglur:

  • 30% óafturkræft staðfestingargjald þarf að greiða til að staðfesta bókunina.

  • Við afbókun 60 dögum eða meira fyrir upphaf ferðarinnar bætist ekkert við gjaldið umfram óafturkræft staðfestingargjald.

  • Við afbókun innan við 60 dögum fyrir upphaf ferðarinnar fæst engin endurgreiðsla.

​

Allar afbókanir skulu berast skriflega og staðfestar í tölvupósti á bookings[at]naerawestfjords.is.

 

Næra Westfjords áskilur sér rétt til að aflýsa ferðinni ef lágmarksfjölda þátttakenda hefur ekki verið náð allt að 6 vikum fyrir upphaf ferðarinnar. Í slíkum tilvikum fá þátttakendur að fullu endurgreitt það sem þeir hafa greitt til Næru Westfjords. Allar endurgreiðslur fara fram í íslenskum krónum (ISK).

​

Við mælum eindregið með því að kaupa víðtæka ferðatryggingu sem nær yfir afbókun ferðar, sjúkrakostnað, persónulega muni og aðra ófyrirséða atburði sem kunna að hafa áhrif á ferðaáætlanir þínar.

​

Með því að bóka þessa ferð staðfestir þú að þú hafir lesið og samþykkt skilmála okkar.

​

Fannst þér þessi ferð áhugaverð?

Ef þig langar að upplifa þessa ferð viljum við gjarnan heyra frá þér. Við svörum öllum spurningum sem þú kannt að hafa og leiðum þig í gegnum bókunarferlið.

Haltu áfram að skoða:

​Skoða Ferðir

Lesa Travel Guides

Lærðu meira um Næra Westfjords

bottom of page